Um okkur
SAGAN OKKAR
Nesfiskur
Nesfiskur ehf. var stofnað í maí 1986 af Baldvini Njálssyni og fjölskyldu hans, sem rak áður fiskverkun Baldvins Njálssonar. Í Garðinum rekur Nesfiskur frystingu, ferskfiskvinnslu, saltfiskverkun, skreiðar- og hausaþurrkun. Þá er Nesfiskur með frystingu og ferskfiskvinnslu í Sandgerði.
Þorbjörg Bergsdóttir hóf útgerð og fiskvinnslu með eiginmanni sínum, Baldvini Njálssyni, árið 1965. Fyrstu árin var útgerðin smá í sniðum en hófst af fullri alvöru 1973. Allt hófst þetta með því að Baldvin keypti bát með föður sínum, Njáli Benediktssyni og Sveini Björnssyni. Sá bátur var gerður út í þrjú ár og þá seldur. Þá var gert hlé á útgerð til ársins 1973 þegar Baldvin Njálsson fór í rekstur með Kjartani Mássyni. Það samstarf var í tvö ár. Þá var stofnuð Fiskverkun Baldvins Njálssonar. Frá árinu 1986 hefur fyrirtækið verið rekið undir nafni Nesfisks með um 400 manns í vinnu. Fyrirtækið á um tug skipa og það nýjasta, hátækni frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400, bættist í flotann á dögum.
Saga fjölskyldu eigendanna speglast í nöfnum skipanna. Bergþór framkvæmdastjóri er sonur Baldvins Njálssonar og Þorbjargar Bergsdóttur, en þau stofnuðu Nesfisk ásamt fjölskyldu sinni. Nýja skipið ber nafn Baldvins. Pálína Þórunn og Bergur Vigfús bera nöfn foreldra Þorbjargar. Margrét var systir Þorbjargar og nafnið á Dóra kemur líka úr hennar ætt.
Auk frystitogarans nýja á Nesfiskur átta önnur skip og gerir út á troll, dragnót og línu. Þau eru Sóley Sigurjóns GK 200, Berglín GK 300, Pálína Þórunn GK-49, Sigurfari GK 138, Siggi Bjarna GK 5, Benni Sæm GK 26, Bergur Vigfús GK 43, Dóri GK 42, Margrét GK 33 og Beta.